Fara Beint Í Efni
Fara Beint Í Efni
Eiginleikar

Kynntu þér eiginleika Opel Mokka-e

Þýsk gæði og djörf stílhrein samtímahönnun 

Djörf, stílhrein hönnun

Láttu heillast af djarfri stílhreinni samtímahönnun að utan sem innan. Glæsilegur framendi, skarpar línur og djarft útlit er það sem einkennir Opel Mokka-e. Komdu og skoðaðu þýsk gæði! 

 

 
Stílhreint innra rými 
Innra rýmið er einnig stílhreint og þýsk nákvæmni í hverju smáatriði. Pure Panel mælaborðið er með 12" skjá sem þú getur aðlagað að þínum þörfum. Hágæðaefnisval er í sætum og í innréttingum.   
Skarpar línur

Skarpar línur og LED afturljósin eru einkennandi að aftan og skapa sterka ásýnd á Opel Corsa-e.

 

 
Áberandi álfelgur

Opel Mokka-e er á 17" álfelgum í Business Elegance útfærslu og 18" álfelgum í Ultimate útfærslu.  Álfelgurnar eru léttari en hefðbundnar stálfelgur og styðja þannig við frábæra aksturseiginleika Mokka-e.

 

 
Einlitur eða tvílitur eftir þínum smekk

Opel Mokka-e er fáanlegur í tvílit með svörtu þaki annað hvort sem auka- eða staðalbúnaður eftir týpum. Hannaðu þinn eigin Opel Mokka-e.

 

 

 

 
Glæsilegur framendi
Glæsilegur framendi setur sterkan svip á Opel Mokka-e í Ultimate útfærslu. Litað húdd er fáanlegt sem aukabúnaður. 

Ríkulegur öryggisbúnaður

Eco LED framljós með háuljósaaðstoð

Opel Mokka-e er með ECO LED framljósum með háuljósaaðstoð sem gera það að verkum að þú þarft ekki að hækka og lækka háu ljósin þegar þú mætir bíl. Í Ultimate útfærslu eru byltingarkennd MATRIX FULL LED framljós með sjálfvirkri hæðarstillingu.

 

 
Fjarlægðarstillanlegur hraðastillir

Opel Mokka-e er með hraðastilli með hraðatakmarkara. Opel Corsa-e Ultimate er einnig fáanlegur með fjarlægðarstillanlegum hraðastilli sem aðstoðar þig við að halda sjálfvirkt ákveðinni fjarlægð við næsta bíl. 

 

 
Snjallöryggishemlun
Opel Mokka-e er með snjallöryggishemlun ( Active City Break) sem greinir t.a.m bíla, hjól og gangandi vegfarendur í allt að 200 m fjarlægð. Opel Mokka-e getur þannig brugðist við ófyrirsjáanlegum aðstæðum skjótar en ökumaðurinn.   
Stafrænt mælaborð 
Opel Mokka-e er með stafrænu mælaborði „Pure Panel“ þar sem þú sérð m.a. stöðu á drægni, akstursupplýsingar í rauntíma og GPS Vegaleiðsögn. Auðvelt er að aðlaga stillingar mælaborðsins að þínum smekk. 
Bakkmyndavél með 180°víddarsýn 
Opel Mokka-e er fáanlegur með bakkmyndavél með 180°víddarsýn og fjölbreyttum stillingum til að auka á yfirsýn og öryggi. 
Bílastæðaaðstoð

Opel Mokka-e er fáanlegur með nálægðarskynjurum að framan og aftan ásamt bílastæðaaðstoð sem aðstoðar ökumann við að leggja í þröng stæði.

 

 

Veldu þægindi í Opel

Upphitað stýri og framsæti 
Opel Mokka-e er fáanlegur með hita í stýri og hita í framsætum. Auk þess getur þú stillt forhitun og bíllinn verður heitur og þægilegur þegar þú leggur af stað. Láttu þér líða vel í Opel Mokka-e. 
Snjallmiðstöð með forhitun 
Opel Mokka-e er með snjallmiðstöð með tímastillingu og forhitun sem er stjórnað með MyOpel appinu. Þú getur haft bílinn heitan þegar þér hentar. Í Ultimate útfærslunni er einnig hægt að forstilla upphitun í skjá bílsins jafnvel alla vikuna fyrirfram. 
Há sætisstaða og góð veghæð 

Opel Mokka-e er með háa sætisstöðu og góða veghæð, svo það er einstaklega þægilegt að ganga um hann. Auðvelt er að fella fram aftursætin ef þú þarft meira pláss fyrir farangurinn. Komdu og mátaðu!

 

 

 

Ríkulegur búnaður í Mokka-e

Ríkulegur staðalbúnaður
GPS vegaleiðsögn, bakkmyndavél, blindpunktsaðvörun, hraðastillir, veglínuskynjun með hjálparstýringu, ökumannsvaki, háuljósaaðstoð og e-call neyðarhringing er hluti af ríkulegum staðalbúnaði í Ultimate útgáfunni. 
Snjallsímatenging
Opel Mokka-e er með Apple CarPlay og Android Auto snjallsímatengingu. Þú varpar símanum þínum upp á skjáinn og getur sem dæmi stjórnað Spotify beint af skjánum. 
Aukabúnaður fyrir þinn lífsstíl
Ýmis aukabúnaður er í boði fyrir Opel Mokka-e til að sníða bílinn að þínum þörfum svo sem skíðafestingar, hjólafestingar, þverbogar, aurahlífar að framan og aftan, skottmotta o.fl. Kynntu þér hvað er í boði í verðlista. 

Hleðsla og hleðslutími

Upplýsingar um hleðslu og hleðslutíma

Opel Mokka-e 100% hreinn rafbíll er á einstaklega hagstæðu verði þar sem þú getur hlaðið á auðveldan máta heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöðvum. Þú nærð 100% hleðslu á 5-7,5 klst með heimahleðslustöð eða 80% hleðslu á u.þ.b. 30 mínútum í hraðhleðslustöð. Opel Mokka-er með eins fasa, 7.4 kW innbyggðri hleðslustýringu en fáanlegur með þriggja fasa, 11 kW innbyggðri hleðslustýringu. Opel ábyrgist 70% hleðslugetu drifrafhlöðunnar í 8 ár eða 160.000 km.

 

Hér eru helstu upplýsingar um hleðslutíma og hvernig Opel hefur hannað bílinn til að hann sé eins einfaldur í hleðslu og kostur er. Söluráðgjafar Opel veita alla ráðgjöf um hleðslu og uppsetningu hleðslustöðva. Hleðslutími getur verið breytilegur af margvíslegum ástæðum t.d. eftir því hvernig tengillinn er, eftir því hversu öflug hleðslustöð er notuð og hversu öflug hleðslustöð bílsins er. Einnig hefur hitastig rafhlöðu og útihitastig ásamt álagi hleðslustöðvarinnar áhrif. Hleðslutæki 230V/8A fyrir Schuko heimatengil fylgir öllum Opel rafbílum. Nánar um hleðslustöðvar og hleðsluhraða á brimborg.is  - smelltu hér.

 

Sérfræðingar mæla með hleðslu rafbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til hleðslu rafbíla til lengri tíma.

 

Þú getur á auðveldan hátt tímasett upphaf hleðslu í MyOpel® appinu eða skoðað áætlaðan hleðslutíma á skjá ásamt því að setja forhitarann í gang svo hann sé heitur og fínn þegar þú vilt nota hann.

 

Heimahleðsla

Hleðslutæki 230V/8A fyrir Schuko heimatengil fylgir öllum Opel rafbílum. Þú getur hlaðið fulla hleðslu á 24+ klukkustundum í 8 Ampera heimatengli. Kanna þarf hvort heimilið sé með viðeigandi tengla og lekaliða á grein sem henta fyrir hleðslu heima.

 

Öflugri hleðslustöð heima eða í vinnu

Við mælum með að þú setjir upp hleðslustöð heima fyrir eða í vinnu sem eykur öryggi og hleðsluhraðann til mikilla muna. Hleðsluhraðinn miðast við 7,4 kW  hleðslustýringu bílsins er 7,5 klst eða 5 klst með 11kW innbyggðri hleðslustýringu bílsins sem er valbúnaður. 

 

Hraðhleðsla  

Þú getur hraðhlaðið 80% af fullri hleðslu á u.þ.b. 30 mínútum með 100kW hraðhleðslustöð. Hraðhleðslustöðvar er víða að finna á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. 

Sérfræðingar mæla með hleðslu rafbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til langtímahleðslu.

 

* Hleðslutími getur verið breytilegur eftir hitastigi rafhlöðu og útihitastigi ásamt álagi hleðslustöðvarinnar. Söluráðgjafi Opel veitir þér ráðgjöf um heimahleðslustöðvar.

 

Brimborg hefur tekið saman ítarefni um ýmislegt sem tengist rafbílum. Hér fyrir neðan eru tenglar á ýmsan fróðleik er tengist rafbílum.

 
Rafbíll | verð og ívilnanir Hvað kostar að hlaða rafbíl? Hleðslustöðvar og hleðsluhraði Hvað kostar að setja upp hleðslustöð?

Drægni og áhrifaþættir

Allt að 328 km drægni á 100% hreinu rafmagni

Stærð drifhlöðu Opel Mokka-e er 50 kWh. Drægni hennar skv. WLTP mælingu í 100% rafmagni er allt að 328 km sem hentar einstaklega vel í allan daglegan akstur þar sem meðalakstur Íslendinga er 40 km á dag. Hér fyrir neðan eru helstu þættir sem hafa áhrif á drægni. 

Hraði
Hraði hefur áhrif á drægni. Orkunotkun er minni á lægri hraða og Opel Mokka-e er því einstaklega hentugur í allan daglegan bæjarakstur. 
Aksturslag og akstursskilyrði
Með því að aðlaga aksturlag að virkni bílsins er hægt að hámarka drægni. T.d. auka mjúk hröðun og rétt notkun hemla eða rafbremsu (B stilling á skiptingu) drægni og sparar orku. 
Útihitastig og miðstöð
Útihitastig, notkun á miðstöð og loftkælingu eru allt þættir sem hafa áhrif á drægni. Forhitun á rafbíl er góð leið til að hámarka drægni þar sem ekki þarf að eyða rafmagni til að hita eða kæla bílinn í upphafi aksturs. 
Farþegar og farangur
Fjöldi farþega og þyngd farangurs getur haft áhrif á drægni þar sem þyngd bílsins er einn af áhrifaþáttum raundrægni. 
MyOpel®appið
Fjarstýrð forhitun og yfirsýn með MyOpel appinu

Opel Mokka-e er með fjarstýrðri forhitun sem tryggir að bíll er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyOpel® appinu ásamt því að tímastilla forhitarann. Einfalt er að vera með yfirsýn í snjallsímanum með MyOpel® appinu. Hægt er að skoða upplýsingar um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og  panta tíma á þjónustuverkstæði.


Í MyOpel appinu er hægt að skoða eftirfarandi upplýsingar þegar þér hentar:
-Stöðu á drægni.
-Hleðslustöðu.
-Fengið upplýsingar um hvað viðvörunarljós í mælaborði þýða.

Þú getur einnig stjórnað þessum aðgerðum beint í gegnum appið:
-Virkjað, stöðvað eða tímasett hleðslu.
-Þú getur stillt forhitun á bílnum þannig að hann sé heitur þegar þú leggur af stað. Forhitun hefur ekki áhrif á hleðslutíma. Pantað tíma á þjónustuverkstæði Opel á Íslandi.

-Virkjað, stöðvað eða tímasett hleðslu.
-Þú getur stillt forhitun á bílnum þannig að hann sé heitur þegar þú leggur af stað. Forhitun hefur ekki áhrif á hleðslutíma. Pantað tíma á þjónustuverkstæði Opel á Íslandi.