Fara Beint Í Efni
Eiginleikar

Tvær lengdir; L1 & L2, og rúmar tvö vörubretti

Tvær lengdir;  L1 og L2
Combo-e  rafmagnssendibíll er fáanlegur í tveimur lengdum; L1 og L2. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 3,9 m3.  
Rúmar auðveldlega tvö vörubretti 
Combo-e rafmagnssendibíll er hábyggður og er því með þægilega hleðsluhæð sem auðveldar lestun og affermingu. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 3,9 m3 og rúmar því auðveldlega tvö vörubretti. 
Allt að 728 kg burðargeta
Burðargeta Combo-e  er allt að 728 kg.  
Fáanlegur með flex cargo innréttingu 
Combo-e er fáanlegur með Flex Cargo innréttingu sem er með fellanlegu farþegasæti og opnanlegri lúgu á þili er auðveldlega hægt að flytja allt að 3,44 m langa hluti.  
Bluetooth, USB, AUX og 12v tengi 
Hluti af ríkulegum staðalbúnaði Combo-e er Bluetooth tengi fyrir snjallsíma, USB tengi, AUX og 12V tengi. 
Hilla fyrir ofan ökumann og farþega
Í Opel Combo-e er hilla fyrir ofan ökumann og farþega. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af geymsluplássi í Combo-e rafmagnssendibíl. 

Veldu þinn Opel sem hentar þínum þörfum

Tvö sæti eða þrjú sæti 
Combo-e rafmagnssendibíll er fáanlegur tveggja eða þriggja sæta. Miðjusætið í þriggja sæta Combo-e er með niðurfellanlegu borði svo að þú getur breytt sætinu í skrifstofu á einu augabragði. 
Fellanlegt farþegasæti
Farþegasætið fellur  auðveldlega niður í gólfið og þannig eykur þú hleðsurými bílsins.
 
Tvískipt afturhurð með 180° opnun 
Afturhurðinar eru með 90 eða 180 gráðu opnun með lokunarvörn sem gera það að verkum að hleðsla og afferming er sérlega auðveld t.d þegar hlaða á bílinn með lyftara.  
Fáanlegur með rennihurð á báðum hliðum
Opel leggur mikla áherslu á fyrirtaks vinnuaðstöðu með góðu aðgengi og hámarks nýtingu. Combo-e sendibíll er með hægri rennihurð sem staðalbúnað og vinstri rennihurð er fáanleg fyrir enn betra aðgengi að farminum. Combo-e er með heilu þili milli hleðslu- og farþegarýmis. 

Ríkulegur staðalbúnaður 

Ríkulegur staðalbúnaður    
Staðalbúnaður í Opel Combo-e er ríkulegur og má þar nefna 3 fasa, 11 kw innbyggað hleðslustýringu, ESP skrikvörn, ASR spólvörn, brekkuaðstoð, rennihurð á hægri hlið, sérlæsingu á hleðslurými í fjarstýringu, Bluetooth tengingu fyrir snjallsíma og hraðastillir svo fátt eitt sé nefnt. Auk þessa er gríðarlegt úrval af aukabúnaði sem þú getur valið í þinn Combo-e sendibíl með aðstoð söluráðgjafa Opel.  
 
Bakkmyndavél með 180° víddarsýn
Combo-e rafmagnssendibíll er fáanlegur með bakkmyndavél með 180°víddarsýn sem eykur enn á öryggi við að bakka gluggalausum sendibíl. 
 

Drægni og áhrifaþættir

Allt að 275 km drægni á 100% hreinu rafmagni
Opel Combo-e sendibíll knúinn 100% rafmagni er með 50 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er framúrskarandi eða allt að 275 km. Opel Combo-e  er fáanlegur með 7,4 kW eða 11 kW innbyggðri hleðslustýringu. Hér fyrir neðan eru helstu þættir sem hafa áhrif á drægni. 
Hraði

Hraði hefur áhrif á drægni. Orkunotkun er minni á lægri hraða og Opel Combo-e er því einstaklega hentugur í  allan daglegan bæjarakstur.

 

 
Aksturslag og akstursskilyrði
Aksturslag og aksturskilyrði hafa áhrif á drægni. Mjúk hröðun og rétt notkun hemla eða rafbremsu (B stilling á skiptingu) eykur drægni og sparar orku. 
Útihitastig, miðstöð og loftkæling
Útihitastig, notkun á miðstöð og loftkælingu eru allt þættir sem hafa áhrif á drægni. Forhitun á rafbíl er góð leið til að hámarka drægni þar sem ekki þarf að eyða rafmagni til að hita eða kæla bílinn í upphafi aksturs. 
Farþegar og farmur
Farþegar og þyngd farms getur haft áhrif á drægni. 

Hleðsla og hleðslutími

Upplýsingar um hleðslu og hleðslutíma

Opel Combo-e sendibíll knúinn 100% hreinn raforku er á einstaklega hagstæðu verði þar sem þú getur hlaðið á auðveldan máta heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á u.þ.b. 5 - 7:30 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og þú hleður tóma drifrafhlöðuna á u.þ.b. 32-48 mínútum í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð. Opel ábyrgist 70% hleðslugetu drifrafhlöðunnar í 8 ár eða 160.000 km.

 

Hér er hlekkur á helstu upplýsingar um þá þætti sem gott er að hafa í huga varðandi hleðslustöðvar og hleðsluhraða. Hleðslutími getur verið breytilegur af margvíslegum ástæðum t.d. eftir því hvernig tengillinn er, eftir því hversu öflug hleðslustöð er notuð og hversu öflug innbyggð hleðslustýring bílsins er. Einnig hefur hitastig rafhlöðu og útihitastig ásamt álagi hleðslustöðvarinnar áhrif. - Smelltu hér til að lesa meira.

Söluráðgjafar Opel veita alla ráðgjöf um hleðslu og uppsetningu hleðslustöðvar og útvega hleðslustöðvar og uppsetningu ef óskað er. Nánar um hleðslustöðvar og uppsetningu hér  - Smelltu hér til að lesa meira.

 

Sérfræðingar mæla með hleðslu rafbíla með heimahleðslustöðvum. Venjulegir heimilistenglar eru ekki ætlaðir til langtimahleðslu.

 

Öflug hleðslustöð heima eða í vinnu

Við mælum með að þú setjir upp hleðslustöð heima fyrir eða í vinnu.. Hleðsluhraði á Opel Combo-e með 50 kWh drifrafhlöðu og eins fasa 7,4 kW heimahleðslustöð er u.þ.b. 7,5 klst eða u.þ.b. 5 klst með þriggja fasa 11 kW heimahleðslustöð. 

 

Hraðhleðsla

Þú hleður 50 kWh drifrafhlöðuna í Opel Combo-e á u.þ.b. 32 mínútum í 80% drægni í 100kW hraðhleðslustöð. Hraðhleðslustöðvar er víða að finna á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. 

 

* Hleðslutími getur verið breytilegur eftir hitastigi rafhlöðu og útihitastigi ásamt álagi hleðslustöðvarinnar. Söluráðgjafi Opel veitir þér ráðgjöf um heimahleðslustöðvar.

 


Brimborg hefur tekið saman ítarlegt efni um allt sem viðkemur rafbílum. Smelltu á hnappana hér fyrir neðan og kynntu þér málið.

 

7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu

Þýsk gæði Opel rafmagnssendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda. Tryggðu þér þýsk gæði Opel!