Ábyrgð Opel bíla
7 ára ábyrgð á bíl og 8 ár á drifrafhlöðu
Ábyrgð nýrra bíla á Íslandi skv. íslenskum lögum er í megindráttum þannig að kaupandi hefur rétt til að bera fram kvörtun um galla í bíl í allt að tvö ár frá afhendingu bifreiðarinnar og í ákveðnum tilvikum í allt að 5 ár frá afhendingu bílsins ef galli kemur fram. Það er lögbundið að veita einstaklingum (neytendum) þennan rétt en lögaðilar (fyrirtæki) geta samið sig frá lögbundinni ábyrgð bíla. Geri þeir það ekki gildir lögbundni kvörtunarrétturinn.
7 ára ábyrgð og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð
Brimborg býður alla nýja Opel bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 7 ára ábyrgð eða að 100.000 km. hvort sem á undan kemur km fjöldi eða tími og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og atvinnubíla. Opel bílar sem ganga að öllu leiti (100% hreinir rafbílar) eða einhverju leiti fyrir rafmagni (tengiltvinn rafbílar) og eru þ.a.l. með drifrafhlöðu eru með 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu eða að 160.000 km, hvort sem á undan kemur tími eða km fjöldi. Ábyrgð drifrafhlöðunnar miðast við að hleðslugetu drifrafhlöðunnar fari ekki undir 70%.
Skilmálar
Skyldur eiganda bíls. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda. Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Opel bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.
Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að viðhalda bifreiðinni samkvæmt ferli framleiðanda eins og kemur fram í þjónustuyfirliti frá framleiðanda / þjónustubók / eigandahandbók sem þú færð með bílnum. Mikilvægt er að fylgja þjónustunni. Við afhendingu nýrra bifreiðar fer söluráðgjafi yfir þjónustuyfirlit bifreiðarinnar. Til viðbótar við almenna skilmála gefur Brimborg út viðaukaábyrgð þar sem fram koma viðbótarréttindi og það sem er undanþegið viðbótarréttindum sem söluráðgjafi fer einnig yfir við afhendingu. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti. Athygli er vakin á því að 7 ára ábyrgð eða að 100.000 km Opel er skv. sérstökum skilmálum sem tóku gildi 1.1.2025. Frá 1.1.2022-31.12.2024 var ábyrgð á Opel bifreiðum 7 ár eða að 140.000 km. Fyrir þann tíma var ábyrgðin 2 ár skv. skilmálum.
Bilun sem rekja má til breytinga á bifreiðinni, notkunar á rangri olíu, röngum vara- eða íhlutum, skorts á viðhaldi eða röngu viðhaldi telst ekki galli og fellur því ekki undir kvörtunarréttinn eða framlengda verksmiðjuábyrgð. Óbeinn kostnaður, hagnaðar- eða tekjutap hjá eiganda, flutningur, dráttur, sími, gisting, eignatjón eða glötuð verðmæti eru ekki bætt og falla ekki undir kvörtunarréttinn.
Viðbótarréttindi vegna framlengds ábyrgðartíma frá Brimborg er háð eftirfarandi, ófrávíkjanlegum, skilyrðum:
· Að mætt sé með bifreiðina í reglulega þjónustu og viðhald á þjónustuverkstæði Brimborgar eða hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Brimborgar frá nýskráningardegi og út ábyrgðartíma skv. fyrirmælum
framleiðanda sem koma fram í í þjónustuyfirliti frá framleiðanda /þjónustu- og eigandahandbók. Kostnaður vegna reglulegrar þjónustu og viðhalds er ávallt greiddur af eiganda bifreiðarinnar.
· Bilun sé ekki hægt að rekja til ytri orsaka og/eða náttúrufyrirbæra, óeðlilegrar notkunar eða misbeitingar.
· Ekki hafi átt sér stað vanræksla af ásettu ráði eða vegna vítaverðs gáleysis sem sé ástæða bilunar.
· Skráning þjónustuskoðana og viðhalds sé sannarlega skráð í upplýsingakerfi Brimborgar, þjónustubók bílsins eða gagnagrunn framleiðanda eftir því sem við á eða lögmætum reikning viðurkennds þjónustuverkstæðis framvísað.
· Þessi viðbótarréttur gildir eingöngu á Íslandi og gildir eingöngu um bíla sem fluttir eru inn af Brimborg ehf.
· Viðbótarréttur fellur niður ef ekki er mætt á réttum tíma í þjónustuskoðun sem gildir bæði um akstur og tíma. Það er alfarið á ábyrgð eiganda ökutækis að mæta á réttum tíma.
Eftirtalið er undanþegið viðbótarréttindum:
Viðhaldshlutir sem ætlað er að skipta um eða fylla á reglulega á líftíma bíls, stillingar, upplitun, sprungur eða aflögun vegna eðlilegrar notkunar og aldurs. Rafgeymar, fjarstýringar, þurrkublöð, ljósabúnaður, hljómflutningstæki, skjáir, lakk, rúður, rakaskemmdir vegna vatnsleka, afgas- og pústkerfi þar með talið sótagnasíur, nemar og hvarfakútur, jafnvægisstangir og tengi, stýrisendar, hlífðarhosur, demparar, kúplingsdiskur, kúplingspressa og lega, hleðslukaplar og aukahlutir settir í hérlendis og eiga ekki uppruna sinn hjá framleiðanda bifreiðarinnar.
Mikilvæg ábending frá Brimborg
Brimborg vill benda á mikilvægi þess að eigandi fylgist reglulega með eftirfarandi atriðum á milli þjónustuskoðana þ.e. vélarolíu, kælivökva, hemlavökva, loftþrýstingi í dekkjum og ljósabúnaði.
Hvert sný ég mér varðandi ábyrgðarviðgerð?
Þú ferð með Opel bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók á Opel verkstæði Brimborgar eða til viðurkennds þjónustuaðila Opel utan Reykjavíkur. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Opel geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.
Ef upp kemur bilun sem eigandi bíls telur að sé vegna galla og falli því undir ábyrgð er mikilvægt að eigandi komi með bílinn án tafar á viðeigandi verkstæði svo hægt sé að ganga úr skugga um hvort um galla sé að ræða, hvort bilun falli undir ábyrgð og hvort ábyrgð sé enn í gildi. Dráttur á að hafa samband og koma með bíl í skoðun vegna bilunar getur haft áhrif á réttindi þín til að fá galla bættan án kostnaðar.
VIÐ ERUM Á ÞREMUR STÖÐUM Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Við erum á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem við erum með þjónustuðila víðsvegar um landið. Við tökum við bókunum í þjónustuskoðanir og viðgerðir á vefnum.