Opel Frontera - frumsýningardagar
Við frumsýnum glænýjan Opel Frontera rafbíl á Íslandi dagana 3.–6. júní í sýningarsölum Brimborgar, bæði á Bíldshöfða 8 í Reykjavík og á Tryggvabraut á Akureyri. Um er að ræða rúmgóðan og fjölhæfan rafbíl sem býður upp á allt að 305 km drægni samkvæmt WLTP staðli með 44 kWh drifrafhlöðu.
Opel Frontera er á hagstæðu verði, frá 3.990.000 kr. með rafbílastyrk. Meðal staðalbúnaðar eru 10 tommu margmiðlunarskjár með GPS vegaleiðsögn í 3 ár, bakkmyndavél, nálægðarskynjarar að framan og aftan, sjálfvirk neyðarhemlun, blindapunktsaðvörun, þráðlaus símahleðsla, 17 tommu álfelgur, LED aðalljós og margt fleira.
Á frumsýningardögum fylgir með öllum seldum Opel Frontera rafbílum sérstakur þægindapakki að verðmæti 160.000 kr. Þægindapakkinn felur meðal annars í sér hita í framsætum, hita í stýri og upphitaða framrúðu, sem er frábært fyrir íslenska veturinn.
„Við hlökkum til að kynna nýjan Opel Frontera rafbíl fyrir íslenskum viðskiptavinum. Þetta er glettilega rúmgóður fjölskyldubíll með ríkulegum staðalbúnaði sem hentar vel í íslenskar aðstæður,“ segir Benný Ósk Harðardóttir, sölustjóri Opel á Íslandi.
Á frumsýningardögum verður Opel Frontera til sýnis í sýningarsal Brimborgar í Reykjavík og á Akureyri. Viðskiptavinum gefst að sjálfsögðu kostur á að reynsluaka nýja bílnum og fá ráðgjöf frá söluráðgjöfum Brimborgar um kaupin, fjármögnun, hleðslulausnir og uppítöku á eldri bílum.
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. Skoða má Opel Frontera á vefnum okkar.