Opel Vivaro
Dísilsendibíll
Opel Vivaro sendibíll
Tryggðu þér nýjan Opel Vivaro sendibíl með þremur sætum, frábæru aðgengi og þægilegri hleðsluhæð. Bíllinn fæst beinskiptur eða sjálfskiptur í tveimur lengdum og er ríkulega búinn. Hleðslurýmið er allt að 6,6 m³ og FlexCargo innréttingin, með fellanlegu sæti og lúgu í skilrúmi, gerir kleift að flytja lengri hluti. Vivaro rúmar þrjú vörubretti og dregur allt að 2.500 kg. Víðtæk 7 ára ábyrgð fylgir bílnum.
4 m3
Lengd hleðslurýmis með FlexCargo
6,6 m3
Rúmmál hleðslurýmis með FlexCargo
2,500 kg
Dráttargeta allt að
Veldu þýsk gæði!
Þýsk gæði Opel sendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir. Tryggðu þér þýsk gæði Opel!
Taktu þátt í orkuskiptunum með Opel
Opel Vivaro er einnig fáanlegur í rafmagnsútfærslu með allt að 350 km drægni skv. WLTP. Snögg hraðhleðsla í 100 kW hraðhleðslustöð gerir þér kleift að hlaða frá 5-80% á allt að 45 mínútum.
Veldu stærð sem hentar þínum þörfum
Opel Vivaro er fáanlegur í tveimur lengdum; L2 og L3. Opel Vivaro er þriggja sæta sendibíll með FlexCargo innréttingu, ríkulegum staðalbúnaði og víðtækri ábyrgð. Að auki getur þú bætt við fjölbreyttum aukabúnaði.
Stórt hleðslurými með FlexCargo innréttingu
Hleðslurýmið með FlexCargo er allt að 6,6 m³ og rúmar þrjú vörubretti. Með fellanlegu farþegasæti og opnanlegu skilrúmi er hægt að flytja hluti allt að 4,03 metra að lengd. FlexCargo innréttingin er staðalbúnaður í öllum gerðum.
Burðar- og dráttargeta
Opel Vivaro er með framúrskarandi burðar- og dráttargetu auk þess að vera fáanlegur í tveimur lengdum.
Góð vinnuaðstaða
Vivaro getur tekið þrjá í sæti. Miðjusætið er niðurfellanlegt með borði sem nýtist sem einföld og hagnýt vinnuaðstaða í bílnum.
Ríkulegur öryggisbúnaður
Opel Vivaro er með ríkulegum öryggisbúnaði og má þar helst nefna: öryggispúða að framan og í hliðum framsæta, öryggisloftpúðagardínur í hliðum, hraðastilli, ökumannsvaka, veglínuskynjum með hjálparstýringu, snjallhemlun, háaljósuaðstoð o.fl.
Skoðaðu úrvalið í vefsýningarsal
Veldu Opel Vivaro sem hentar þínum þörfum. Þú sérð úrvalið á lager og í pöntun í vefsýningarsal Brimborgar með því að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.