Fara Beint Í Efni
Tegundir

OPEL SENDIBÍLAR

Taktu þátt í orkuskiptunum með Opel!

Opel rafsendibílar eru á meðal vinsælustu rafknúnu atvinnubíla á Íslandi, með mjög góða markaðshlutdeild. Opel rafsendibílar státa af þýskum gæðum sem eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni, góðri drægni og miklum hleðsluhraða. Sparneytni, lágur rekstrarkostnaður, fyrirtaks vinnuaðstaða með góðu aðgengi, hámarks nýting, ríkulegur búnaður, löng ábyrgð og fjölmargar stærðarútfærslur tryggja m.a. vinsældir Opel rafsendibíla.

 

 

Þýsk gæði með 7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu

 
Þýsk gæði Opel sendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir. Tryggðu þér þýsk gæði Opel!
 
Combo Electric rafsendibíll með allt að 343 km drægni 

Opel Combo Electric er 100% hreinn rafsendibíll með allt að 343 km drægni á hreinu rafmagni og hraðhleðslumöguleika. Combo Electric er fáanlegur í tveimur lengdum, með rennihurð á báðum hliðum og rúmar auðveldar auðveldlega tvö vörubretti. Opel Combo Electric er með 750 kg dráttargetu og 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að kynna þér sendibílinn nánar.

 

 
Kynntu þér Combo Electric
Vivaro Electric 100% rafsendibíll með allt að 350 km drægni

Opel Vivaro Electric er 100% hreinn rafsendibíll með allt að 350 km drægni á hreinu rafmagni og hraðhleðslumöguleika. Opel Vivaro Electric er fáanlegur í þremur lengdum, með rennihurð á báðum hliðum og rúmar auðveldar auðveldlega þrjú vörubretti. Opel Vivaro Electric er með 1000 kg dráttargetu og 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að kynna þér rafsendibílinn nánar.

 

 
Kynntu þér Vivaro Electric
Movano Electric 100% rafsendibíll með allt að 424 km drægni

Opel Movano Electric er 100% hreinn rafsendibíll með góðri drægni, miklum hleðsluhraða, fyrirtaks vinnuaðstöðu með góðu aðgengi, ríkulegum útbúnaði og lágum rekstrarkostnaði.  Opel Movano Electric rafsendibíll er framdrifinn með 110 kWh drifrafhlöðu og allt að 424 km drægni skv. WLTP mælingu. Movano Electric er fáanlegur í tveimur lengdum og með háþekju og rúmar auðveldlega fimm vörubretti. Movano Electric er með 2400 kg dráttargetu. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan og kynntu þér Opel Movano Electric nánar.

 

 
Kynntu þér Movano Electric nánar

Rafbílastyrkir frá Orkusjóði

 

 

Rafbílar fá rafbílastyrk frá Orkusjóði. Rafsendibílar í ökutækjaflokknum N1 sem eru nýskráðir eftir 1.  janúar 2024 fá greiddan 500.000 kr. rafbílastyrk ef kaupverð er undir 10 millj. kr.  Að auki geta fyrirtæki í atvinnurekstri  innskattað 24% virðisaukaskatt af kaupverðinu ásamt því að innskatta allan rekstrarkostnað sendibílsins ef bíllinn er á rauðum númerum.
Það hefur aldrei verið öruggara að eiga rafsendibíl
Góð drægni, aukinn hleðsluhraði, þéttara hraðhleðslunet, lengri ábyrgð, lægri rekstrarkostnaður, minni mengun, meiri þægindi, framúrskarandi vinnuaðstaða og betri endursala.